| 2010-09-02 |
|
Vinnsla hefst að nýju hjá Vísi
|
Vinnsla hefst að nýju hjá Fiskvinnslunni Vísi á Þingeyri 13. september. Fyrirtækið hefur verið lokað frá 1. júní vegna langvarandi hráefnisskorts. Er vinnslunni var lokað í byrjun júní sagði Pétur H. Pálsson, framkvæmdastjóriVísis hf. í Grindavík, sem á og rekur vinnsluna á Þingeyri, að aðeins yrði lokað í tæpa tvo mánuði umfram sumarleyfi. Ástæðan fyrir lokunni sagði hann vera ónógt framboð á fiski og óstöðug...
Fara á fréttasíðu...
|
|
 |
| 2010-09-02 |
|
Hafsjór tækifæra: Getur íslenskur sjávarútvegur vaxið um 50 milljarða á næstu 5 árum?
|
Fyrsta sjávarútvegsráðstefnan verður haldin næst komandi mánudag og þriðjudag, 6.-7. september 2010 á Grand Hótel í Reykjavík. Skipuleggjendur beina þeim vinsamlegu tilmælum til þeirra sem hafa hug á að taka þátt í Sjávarútvegsráðstefnunni 2010 að skrá sig í síðasta lagi föstudaginn 3. september til hagræðingar - ekki síst fyrir þátttakendurna sjálfa. Eftir föstudaginn 3. sept. hækkar skráningargjaldið ...
Fara á fréttasíðu...
|
|
 |
|
 |
| 2010-09-02 |
|
Haraldur Hansson: Auðlindir. Hvaða auðlindir?
|
ESB er stór innflytjandi á fiski en Ísland er útflutningsríki. ESB rekur sjávarútveg sem olnbogabarn í landbúnaði en á Íslandi er hann meginstoð. ESB veitir margvíslega styrki til útgerðarinnar en á Íslandi þarf hún að vera arðbær (og má aldrei detta inn í styrkjakerfi). Innan ESB er mikilvægi sjávarútvegs hverfandi en á Íslandi afgerandi. Það sem ætti að vera til umræðu í auðlindamálum er HVERS VEGNA í ósköpunum við ættum að setja okkar verðmætustu auðlind undir kerfi sem var hannað fyrir allt annað umhverfi, er meingallað og hefur reynst öllum illa....
Fara á fréttasíðu...
|
|
 |
| 2010-09-02 |
|
Kristinn Pétursson: Aukum makrílkvótann strax - mjög varlega - um 30%
|
Fagmenn hjá Hafrannsóknarstofnun upplýstu nýlega - að nú sé þrefalt magn af makríl í íslenskri lögsögu í ár - miðað við það magn sem var hér í fyrra. Jafnframt kom fram í sömu frétt - að sýna yrði "varkárni" við veiðar og var jafnframt talin tormerki á auknum aflaheimildum...??? Mér finnst svona málflutningur ekki beinlínis traustverkjandi. Ef magn af makríl er þrefalt í ár - miðað við síðasta ár - ( ÞREFALT ! ).. þá hlýtur að vera stærri stofn á ferðinni en talið var og því óhætt er að auka aflakvóta eitthvað - til þess að gera skipstjórnarmönnum gerlegt ...
Fara á fréttasíðu...
|
|
 |
|
 |
| 2010-09-02 |
|
Verðmætarýrnun vegna galla í saltfiskafurðum - vinnufundur 17. september
|
Mikil þróun hefur átt sér stað í saltfiskverkun undanfarin ár. Saltfiskverkun hefur þróast frá því að vera stæðusöltun þar sem lakara hráefni var nýtt til framleiðslu afurða, í að vera margskiptur ferill þar sem mismunandi söltunartækni er beitt til að ná æskilegri nýtingu og sem mestum gæðum.
Kröfur til hráefnisgæða hafa einnig gjörbreyst. Þessir þættir auk breytinga í geymsluaðstæðum og flutningsferlum hafa skilað íslenskum framleiðendum ráðandi stöðu á þeim mörkuðum sem gefa hæst verð. Útlit, þar með talinn blær skiptir verulegu máli í verðlagningu afurða ásamt stærðarflokkun. Saltfiskverkun er langt framleiðsluferli þar sem afurðagallar koma oft á tíðum ekki fram fyrr en ...
Fara á fréttasíðu...
|
|
 |
| 2010-09-02 |
|
Egill Jóhannsson: ESB hafstjórnarsvæði við Ísland. Snuð með hunangi
|
Í Kastljósi í kvöld talar aðalsamningamaður Íslands í viðræðum við ESB um sjálfsstjórnarsvæði á hafsvæðinu við Ísland. Hugmyndin virðist vera sú að stofna til sérstaks hafstjórnarsvæðis umhverfis Ísland. Það blasir við hvað verið er að reyna að gera. Markmiðið verður að sannfæra Íslendinga að framkvæmdin, dagleg stjórnun, verði í höndum heimamanna. Raunin mun verða sú að hin formlegu yfirráð verða...
Fara á fréttasíðu...
|
|
 |
|
 |
| 2010-09-02 |
|
Óskar Þórarinsson útgerðarmaður á Frá VE: Allt of mikið af þorski í sjónum
|
"En þetta er veruleg lækkun, aðallega í ýsunni, líklega um hundrað tonn hjá okkur. En svo má ekkert hækka í þorskinum, þó að alls staðar í kringum landið sé sömu sögu að segja, menn eru í vandræðum með hann, það er svo mikið af honum. Viðhorf fiskifræðinganna minna mig orðið meira á trúarbrögð en vísindi.Það er skoðun nær allra í þessari grein að það sé allt of mikið af þorski í sjónum. Nema fiskifræðinganna. Þeir viðurkenna það bara ekki og eru fullir hroka ef þetta er ámálgað við þá. Segjast vera með stærð stofnsins alveg á hreinu. Mér finnst það svolítið merkilegt, að þeir skuli vita þetta, þeir sem eru með fiskeldi ...
Fara á fréttasíðu...
|
|
 |
| 2010-09-02 |
|
Hjálmar Kristjánsson hjá KG fiskverkun: Kvótakerfið er hagstætt og virkar vel
|
"Ég er óhræddur við stöðu sjávarútvegsins, svo framarlega sem stjórnvöld setja okkur ekki mjög íþyngjandi reglur. Ég myndi ekki vilja sjá miklar breytingar gerðar á kvótakerfinu, það er hagstætt og hefur virkað mjög vel," sagði Hjálmar Kristjánsson framkvæmdastjóri KG fiskverkun ehf. í Rifi í samtali við Skessuhorn. Vinnu starfshóps um endurskoðun á fiskveiðistjórnunarkerfinu fer senn að ljúka en Hjálmar er ekki mjög bjartsýnn...
Fara á fréttasíðu...
|
|
 |
| 2010-09-01 |
|
Grindavík þriðja kvótamesta höfnin
|
Þorbjörn hf í Grindavík ræður yfir 15.013.651 þorskígildistonnum sem er 5,55% hlutdeild heildaraflamarks. Þorbjörn er þar með í fjórða sæti yfir þau fyrirtæki sem ráða yfir mesta kvótanum. Vísir í Grindavík er í sjötta sæti með 11.570.805 þorskígildi sem gerir 4,28% hlutdeild. ...
Fara á fréttasíðu...
|
|
 |
| 2010-09-01 |
|
Hvalveiðar ganga mjög vel
|
Í morgun [þriðjudag] kom 109. hvalurinn á land í Hvalstöðinni í Hvalfirði á þessari vertíð. Það var Hvalur 8 sem þá kom til hafnar. Hvalur 9 kom með tvo í stöðina á sunnudaginn. Að sögn Gunnlaugs Fjólar Gunnlaugssonar skiptast skipin á um að koma inn sitt hvorn daginn. "Veiðarnar hafa gengið eins og í sögu, þrátt fyrir að þokan hafi legið svolítið við ströndina að undanförnu og skipin því þurft að sigla lengra eða allt upp í 200 mílur ...
Fara á fréttasíðu...
|
|
 |