2010-07-14
Lundey NS: Kríllaveiðarnar

Góðan dag læsir og ólæsir. Lundey hélt frá Vopnafirði rétt fyrir kl 20°° í gær eftir snarpa löndun en viktartölur hafa ekki fengist staðfestar.

Að þessu sinni fórum við mun styttra en áður og var regnbogatrollið látinn fara
kl 06°° og var komið ljós á aumingjan þegar lundafréttir áttu leið um stjórnpall í morgunsárið.

Má geta þess að í gærkvöldi mátti sjá vaðandi makríl ( sennilega makríl ) um allan sjó en það var innan við 12 mílurnar sem eru mörkin þar sem flottrollsveiðar eru leifðar.

Hjá okkur er logn og spegilsléttur sjór og 14,4 °c, muna elstu menn varla meiri blíðu og eru þeir þó orðnir nokkuð gamlir.

Veitustjóri þakkar að sinni.......BK...........

Lundey NS


   Login
 Newsletter Subscription
Market Overview
 Market Buy Sell


@ Copyright Interseafood Íslandi hf.
Strandgata 11 – 220 Hafnarfjörður - info@interseafood.com - +354 581 1000 Fax: +354 581 1026