2009-02-02
Íslenska bleikjan vekur hrifningu í Frakklandi

Samherji hf. tók á dögunum þátt í hinni gríðarstóru matvælasýningu Sirha í Lyon í Frakklandi þar sem kynntar voru afurðir félagsins. Viðtökur voru framar vonum hjá hinum fjölmörgu gestum sem m.a. fengu að bragða á lystilega framreiddu fersku íslensku fiskmeti.

Samherji var með sýningarbás þar sem afurðir félagsins voru kynntar en Sirha er vörusýning á öllu er viðkemur hótel- og veitingarekstri og er matur þar lang fyrirferðamestur.

Að sögn Birgis Össurarsonar sölu- og markaðstjóra Samherja, gekk sýningin vonum framar. Mjög mikill fjöldi fólks sótti hana þá 5 daga sem sýningin stóð.

Einar Geirsson meistarakokkur og eigandi veitingastaðarins RUB 23 á Akureyri, eldaði afurðir Samherja og gaf gestum og gangandi að bragða við mikla hrifningu.

Birgir segir að þátttaka í sýningu sem þessari hjálpi mikið til við markaðssetningu sjávarafurða en að þessu sinni var lögð áhersla á eldisafurðir Samherja, bleikju, lúðu og sandhverfu.

Samherji


   Innskráning
 Fréttaáskrift
Markaðstorg
 Markaður Kaup Sala



@ Copyright Interseafood Íslandi hf.
Strandgata 11 – 220 Hafnarfjörður - info@interseafood.com - +354 581 1000 Fax: +354 581 1026